DAÐASTAÐIR - sveitabær í Núpasveit við Öxarfjörð
Daðastaðir
Myndbönd og kennsluefni
Border Collie til sölu
25.12.2011 12:41:25 / dadastadir

Jólakveðja með hefðbundnu sniði :)


Kæru vinir, félagar, áhugamenn um fjárhunda og aðrir góðir gestir. Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Kærar þakkir fyrir liðið. Vonandi fara allir í hundana en enginn í jólaköttinn ;).

Jólakveðja frá fjölskyldunni á Daðastöðum







» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2011 12:53:13 / dadastadir

Landgræðsluverðlaun


Gunnar Einarsson og Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir, Daðastöðum í Núpasveit

Hjónin Gunnar og Guðrún Sigríður hafa alltaf haft mikinn áhuga á uppgræðslumálum og hófu strax landgræðsluaðgerðir þegar þau fluttu í Daðastaði árið 1982. Á Daðastöðum eru 950 vetrarfóðraðar kindur, 7 hestar og 13 hundar, en til fróðleiks má geta þess að Gunnar er einn af frumkvöðlum þess að flytja inn og rækta Border Collie smalahunda. Þau hjón hafa verið virkir þátttakendur í verkefninu Bændur græða landið frá árinu 1991. Þar byrjuðu þau frekar stórt eða með 4 tonn af áburði. Rétt er að geta þess að jörðin var ákaflega illa leikin af uppblæstri, þegar þau tóku við henni, nánast eins og gatasigti yfir að líta.

Horft ofan af Núp yfir uppgrædda mela í nágrenni Daðastaða

Árið 2001 var girt stór landgræðslugirðing í landi Daðastaða eða um 10,5 km að lengd. Frá og með 2006 hefur verið dreift 10 tonnum af áburði og 100 kg af fræi á uppgræðslusvæði í Daðastaðalandi. Húsdýraáburður hefur einnig verið notaður til uppgræðslu og sauðfé og hrossum gefið úti á melum á vorin og haustin. Hefur það skilað góðum árangri. Lögð er áhersla á að loka rofabörðum og búið er að ýta niður og græða upp nokkra kílómetra af þeim. Lúpína hefur einnig verið notuð til uppgræðslu og beitar.

Daðastaðir hafa fengið styrk úr Landbótasjóði Landgræðslunnar undanfarin ár og unnið samkvæmt landbótaáætlun. Samtals er búið að vinna á um 340 hekturum lands á Daðastöðum í samvinnu við verkefnin Bændur græða landið og Landbótasjóð Landgræðslunnar.

Kristján sonur Guðrúnar Sigríðar hefur mikinn áhuga á uppgræðslumálum og hefur unnið mikið að þessum landgræðsluaðgerðum, eins og reyndar aðrir fjölskyldumeðlimir. Landgræðslusvæðin eru öll kortlögð og undanfarin ár hefur Kristján skráð nákvæmlega hve mikill áburður og fræ hefur farið á hvert svæði og hvenær. Það er því auðvelt að skrifa uppgræðslusögu Daðastaða.

Starf þeirra hefur sýnt að hægt að er að stunda búskap í sátt við landið og skila því betra ástandi til komandi kynslóða. Þau eru sannir landgræðslubændur.

Afritað af síðu Landgræðslunnar: land.is, sjá nánar:
http://www.land.is/index.php?option=com_content&view=article&id=652%3Alandgraeesluverelaun-2011&catid=67%3Afrettir&Itemid=88&lang=is


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.10.2011 22:26:07 / dadastadir

Smalahundamót Kaldármelum 30. okt 2011


Undirrituð og Panda tóku þátt í deildarkeppni Smalahundafélags Snæfells- og Hnappadalssýslu, sem var haldin á Kaldármelum í dag. Þetta var allt saman nokkuð óvænt, en ég held til í Reykjavík í námi þessa dagana og Panda flutti í bæinn til mín fyrir viku. Við höfum því lítið sem ekkert getað æft síðan fyrir Landsmót. Það sem bjargaði okkur var að Alli á Húsatóftum var svo elskulegur að leyfa okkur að æfa á kindunum sínum þannig við gætum tekið smá upprifjun. Gunni frá Hafnarfirði var síðan svo elskulegur að taka okkur með og Snæfellingar að taka á móti okkur. Það varð því úr að við skottuðumst á Snæfellsnesið. Ferðin skilaði okkur öðru sæti í unghundaflokki og við vorum ekki sendar tómhentar heim. Okkur hlotnaðist bikar, hundamatur og matarskál. Ekki amalegt það ;). Við Panda þökkum kærlega fyrir okkur.

Úrslit voru eftirfarandi:

Unghundaflokkur:
1. sæti með 66/90 stig. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Kría frá Daðastöðum (undan Dan frá Skotlandi/Daðastöðum og Soffíu frá Daðastöðum)
2. sæti með 60/90 stig. Elísabet (Lísa) Gunnarsdóttir og Panda frá Daðastöðum (undan Dan frá Skotlandi/Daðastöðum og Skottu frá Daðastöðum)
3. sæti með 47/90 stig. Gísli Þórðarson og Fía frá Brautartungu (undan Killiebrie Jim og Tinnu frá Kirkjubóli)


Gísli og Fía, Lísa og Panda, Alli og Kría

B-flokkur
1. sæti með 67/90 stig. Halldór Pálsson og Kappi frá Hafnarfirði (undan Mac frá Wales/Eyralandi og Týru frá Kaðalsstöðum)
2. sæti með 45/90 stig. Brynjar Hildibrandsson og Patti frá Ystu-Görðum (Heimsenda -Kátur og ?)

A-flokkur
1. sæti með 78/100 stig. Gísli Þórðarson og Spóla frá Daðastöðum (undan Rex frá Daðastöðum og Lús frá Eyralandi)
2. sæti með 77/100 stig. Hilmar Sturluson og Dot frá Wales (undan Nap og Nell frá Wales)
3. sæti með 69/100 stig. Gunnar Guðmundsson og Ólína frá Hafnarfirði (undan Mac frá Wales/Eyralandi og Týru frá Kaðalsstöðum).

Nokkrar myndir frá mótinu:
http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/288492/

Höf. færslu: Lísa Gunnarsdóttir

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.10.2011 13:23:46 / dadastadir

Óvelkomið áreiti

Síðan er undir árás frá e-jum óþekkum og óþekktum aðilum. Það hlaðast inn ýmis undarleg skilaboð, sem vefstjóri er mátulega þakklátur fyrir. Hefur einhver lent í þessu og kann einhver góð ráð?

Rétt að vara menn við að "klikka" á þessar slóðir sem birtast með skilaboðunum. Örugglega e-ð vafasamt.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2011 15:29:18 / dadastadir

Gamlir gullmolar


Ég fann þessar gömlu greinar inni á tímarit.is (og margar fleiri til reyndar). Þetta eru tvö viðtöl við Gunnar. Fyrri greinin er síðan 1987, en þá eru bara um fimm ár síðan við flytjum í Daðastaði, og hin síðan 1993. Gunnar er enginn nýgræðingur í hundaræktuninni. Í fyrri greininni eru nefndir nokkrir hundar á nafn, sem stór hluti fjárhunda Íslands getur rakið ættir sínar til. Einnig eru nokkrar myndir. Það hefur margt breytst síðan Gunnar flutti fyrstu hundana til Íslands og bætist sífellt í hóp hunda og smala.

Dagur 1987, 2 bls. http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=207681&pageId=2679548&lang=is&q=Gunnar%20Einarsson%20b%F3ndi%20Da%F0ast%F6%F0um
Ath. til að komast á blaðsíðu 2 þarf maður síðan að fletta vinstra megin á síðunni sem kemur upp.

Tíminn 1993: http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=281796&pageId=4072770&lang=is&q=Gunnar%20Einarsson%20b%F3ndi%20Da%F0ast%F6%F0um



» 11 hafa sagt sína skoðun

09.10.2011 11:44:19 / dadastadir

Aðrar göngur Núpsveitunga 2011


Aðrar göngur fóru fram helgina 1. og 2. október 2011. Fyrri daginn smöluðum við niður í Daðastaði og seinni daginn smöluðum við í sameiginlegt aðhald Núpsveitunga upp við Rauðhóla og Kvíar. Veður var ágætt. Svolítið vindasamt fyrri daginn og aðeins blautt seinni daginn, en ekkert til að barma sér yfir. Féið gekk hratt og það smalaðist vel. Smalar voru Gunnar Einarsson, Lísa Gunnarsdóttir, Aðalsteinn J. Halldórsson, og bræðurnir Þröstur Sveinsson og Vilhjálmur Örn. Sá síðarnefndi hafði ekki farið á hestbak í yfir 20 ár, en það bar ekki á öðru en hann hefði aldrei gert annað. Fyrri daginn sendum við fimm smala og seinni daginn þrjá, þá nutum við ekki liðsinnis þeirra bræðra. Smalahundar voru Prins, Dan, Dreki, Skotta og Panda. Panda fór þarna í sína jómfrúarferð og stóð sig vel. Smalahestar voru Fálki, Skjóni, Þari, Stúdent, Leiknir, Afródíta og Feykir. E.t.v. ekki mjög áhugaverð upptalning fyrir lesendur en það verður gaman fyrir okkur á Daðastöðum að eiga þessar heimildir þegar fram líða stundir ;). Annars eru það hefðbundin hauststörf sem einkenna lífið á Daðastöðum þessa dagana. Í dag, til að mynda, eru þeir feðgar Gunnar, Kiddi og Reynir að velja sláturlömbin í síðari umferð slátrunar.

Höf. færslu: Lísa Gunnarsdóttir

» 12 hafa sagt sína skoðun

21.09.2011 12:39:16 / dadastadir

Fyrstu göngur í Núpasveit 2011


Vel viðraði á smala í fyrstu göngum í Núpasveit þetta haustið. Síðastliðinn föstudag var haldið upp í heiði í blíðskaparveðri björtu og stillu og höfðu menn áhyggjur að því að veðrið væri jafnvel of gott. Það þykknaði þó upp þegar komið var upp í Kálfafjöll og dropaði nánast það sem eftir var dags. Annars var hlýtt og rigndi aldrei þannig að grípa þyrfti til regnfata. Þetta var því ákjósanlegasta veður.

Þreytt Píla
Píla hvílir lúin bein eftir erfiði helgarinnar

Smalar fyrir Daðastaði í þessum göngum voru Gunnar Daðastaðabóndi, Kolbeinn, Kiddi, Óli og Birkir. Lísa varð að láta sér nægja að hugsa fallega til smalanna að þessu sinni.

Þrír smalar frá Daðastöðum gistu sem áður í gangnakofanum ásamt þremur smölum frá Presthólum og Katastöðum og var glatt á hjalla. Gestkvæmt var og komu jafnvel gangnamenn úr næstu sveitum til að taka þátt í gleðinni enda auðvelt um vik eftir að Hófaskarðs leiðin var lögð rétt við gangnakofann.

Gunnar og Birkir gistu hinsvegar í húsbíl sem öðlingurinn Þröstur Sveinsson hafði lánað og ekið upp að Kálfafjöllum.

Laugardagurinn var svo sólríkur að litlu mátti muna að það væri til vandræða en þó gengu smalamennskur vonum framar og var búið að reka inn í Katastaðarétt um kl. 5 síðdegis.

Á sunnudagsmorgun var svo réttað í Katastaðarétt en þegar því lauk upp úr kl. 11 var farið að undirbúa að ríða aftur upp í heiði og smala heimaland Daðastaða. Kolbeinn, Kiddi og Óli riðu frá Katastöðum upp fyrir Grjótfjöll upp á Fremri Dal en Gunnar og Birkir óku hestum heim og riðu yfir Núpinn til móts við hina smalana. Smölun á heimalandi gekk nokkuð vel en að venju var ekki mikið eftir af dagsbirtu þegar hliðum var lokað á eftir síðustu smölum þann daginn. Veður var nokkuð gott en hvasst og þá sérstaklega ofan Grjótfjalla.

Hér eru nokkrar myndir: http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/288178/

Höf. færslu: Ólafur Daníel Jónsson


» 14 hafa sagt sína skoðun

11.09.2011 08:21:20 / dadastadir

í tilefni gangna ;)


Fjallskilareglugerðin, hin nýrri - eftir Sigurbjörn Kristjánsson frá Finnsstöðum í Ljósavatnshreppi

Smölun er oft þeim manni um megn
sem má ekki þola storm né regn.
Best er að sérhver búandaþegn
sé bálreiður haustið út í gegn

Þú skalt æða yfir stroð
aldrei tala hlýlegt orð.
Svipurinn þarf að minna á morð
ef menn ætla að smala á annað borð.

Hendi skal upp á móti hönd
þá heima eru smöluð lönd.
Orðin þá ekki valin vönd
vestur á Glámu og Barðarströnd.

Ef rekstur kemur, þú reiðast átt,
rífast um bæði stórt og smátt.
Tvístr'onum, öskra og hrópa hátt,
en hirð'ann bara ef það er fátt.

Ef réttinni safnið rennur nær,
reynir á þol og fimar tær.
Hver sá sem verður ekki ær,
ætti ekki að teljast gangnafær.

» 17 hafa sagt sína skoðun

29.08.2011 14:37:33 / dadastadir

Landsmót smalahunda 2011


Landskeppni Smalahunda 2011 var haldin á Eyralandi um dagana 28. til 29. ágúst. Umgjörðin um keppnina var til fyrirmyndar eins og við var að búast og félagsskapurinn góður.  Margir góðir smalar, með frambærilega og vel tamda hunda.  Ég er s.s. enginn reynslubolti í þessum keppnum, en ég hef tilfinningu fyrir því að gæði keppninnar aukist ár frá ári.

Undirrituð var eini fulltrúi Daðastaða þetta árið og keppti með tvo hunda. Skottu frá Daðastöðum  (undan Prins frá Daðastöðum og Pílu frá Garði/Daðastöðum) í  A-flokki, og Pöndu frá Daðastöðum í unghundaflokki. Panda er undan Skottu og Dan.

Fyrir þá sem ekki vita í stuttu máli. A-flokkurinn er með lengstu og þyngstu brautina og þar keppa mest tömdu hundarnir eins og gefur að skilja. B-flokkurinn er með aðeins styttri braut og ekki gerð krafa um að hundurinn skipti hópnum upp – hugsaður fyrir hunda sem eru vaxnir upp úr unghundaflokknum, en ekki alveg tilbúnir í A-flokkinn.  Unghundaflokkurinn er síðan fyrir hunda sem eru yngri en 3ja ára.



Við Skotta áttum góða daga og lönduðum 3ja sætinu í A-flokki. Við stöllur erum afar glaðar með það, enda öttum við kappi við bestu hunda landsins.  Við erum búnar að vera duglegar að æfa á síðasta ári og það skilaði sér um helgina.  Skotta er afbragðs tík. Hún er glerhörð, hefur óbilandi áhuga og mikla nærveru. Hún vill helst vinna hratt og sækja á féð. Ég hef því þurft að leggja rækt við lágu gírana og fjarlægðina í tamningunni. Hún er heldur stíf á meiningunni á köflum, en er þó alltaf í bata hvað það varðar og ég kýs að líta á það sem lúxusvandamál ;).


Í A-flokki kepptu 10 hundar og úrslit í A- flokki voru þessi (samanlögð stig giltu til úrslita)

1. Gunnar Guðmundsson og Taff frá Englandi  (81/100 og 86/100 stig)
    Taff er undan Teddy Moore Cap og Astley Fly
2. Hilmar Sturluson og Dot frá Wales (70/100 og 84/100 stig)
    Dot er undan Nap og Nell
3. Elísabet (Lísa) Gunnardóttir og Skotta frá Daðastöðum (75/100 og 71/100 stig)
    Skotta er undan Prins frá Daðastöðum og Pílu frá Garði/Daðastöðum


Við Panda áttum ágæta daga þó við lönduðum ekki verðlaunasæti. Við fengum 47/90 stig fyrri daginn  og 60/90 seinni daginn. Frammistaða Pöndu var í samræmi við væntingar, fyrir utan að hún krossaði í úthlaupinu fyrri daginn, sem kostaði okkur 19 stig af 20 mögulegum. Ég viðurkenni að ég dauðsá eftir þeim stigum, en það gerir ekkert til. Panda er í mörgu lík mömmu sinni, en heldur hófstilltari útgáfa. Hún er áræðin, með mikla vinnugleði, er eðlislægt að vinna hratt og sækja á. Ég er alltaf að verða hrifnari af henni. Mér fannst á tímabili heldur nóg um tætinginn í henni, en hún hefur þroskast mikið á síðasta ári og tekið vel við tamningu. Ég hef lagt talsverða vinnu í hana, hún er farin að vinna nokkuð vel og orðin ágætlega hlýðin. Betur má ef duga skal, ég þarf að bæta í fjarlægðina hjá henni, ná betri stjórn á hraðanum og slípa eitt og annað.

Í unghundaflokki voru 8 keppendur og úrslit í Unghundaflokki eftirfarandi (samanlögð stig giltu til úrslita). Frábærir hundar sem eiga framtíðina fyrir sér :d.

1. Svanur Guðmundson og Tinni frá Staðarbakka (63/90 og 64/90 stig)
    Tinni er undan Díli frá Hæl og Lýsu frá Flekkudal
2. Aðalsteinn Aðalsteinsson og Kría frá Daðastöðum (61/90 og 66/90 stig)
    Kría er undan Dan frá Daðastöðum og Soffíu frá Daðastöðum
3. Sverrir Möller og Bjartur frá Ytra-Lóni (64/90 og 55/90 stig)
    Bjartur er undan Prins frá Daðastöðum og Fjáru frá Dalatanga


Ég set hér inn nýleg video af þeim mæðgum. Kindurnar eru auðvitað orðnar hálf leiðinlegar og svifaseinar af mikilli notkun. Það hefur sína kosti og galla þegar maður er að æfa. Úti á örkinni er ekki endilega jafn mikil yfirvegun á hlutunum.
Skotta, upptaka 21. Júlí 2011: http://www.youtube.com/watch?v=lYSJwMhFABM
Panda, upptaka 21. júlí 2011
: http://www.youtube.com/watch?v=XjJWIJLz4To,
og eldri upptaka frá 16.1.2010 til samanburðar:
http://www.youtube.com/watch?v=WmwzoAeWbj4.



Í B-flokki  voru þrír keppendur og úrslit þessi (samanlögð stig giltu til úrslita)

1. Valgeir Magnússon og Snót frá Grundafirði (23/90 og 40/90 stig)
    Snót er undan Káti frá Bergi og Skottu frá Fossi
2. Bjarki Benediktsson og Trúska frá Breiðavaði (47/90 og 0/90 stig)
    Trúska er undan Spora frá Súluvöllum og Tíkó frá Breiðavaði
3. Jón Geir Ólafsson og Snúður frá Garðabæ
    Snúður er undan Verði frá Hæl og Iðu frá Hæl (26/90 og  0/90 stig)


Dómari á mótinu var Martin Calvin Jones frá Wales

Bestu þakkir til aðstandenda keppninnar og keppanda fyrir ánægjulega helgi. Spennandi tímar framundan!!! Hér eru síðan nokkrar myndir frá mótinu:  http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/287976/


Höf. færslu: Elísabet Gunnarsdóttir


» 15 hafa sagt sína skoðun

22.08.2011 14:04:45 / dadastadir

Af utanlandsförum ofl.


Gunnar, Guðrún og Kiddi eru snúin aftur heim eftir tveggja vikna dvöl í Bretlandi þar sem þau lögðu stund á hugleiðslu og meinlætalifnað. Óhefðbundið en lærdómsríkt sumarfrí. Þau hjónin notuðu ferðina líka í að skoða Huntaway hunda, og sáu nokkra álitlega. Hugmyndin var auðvitað sú að heyskapur yrði nánast búinn þegar þau færu út, en veðrið fyrri part sumars gerði út um þau plön. Þau ákváðu að láta það ekki stoppa sig og svo fór að þau þurftu að sætta sig við að fara frá hálfnuðu verki. Gunnar bóndi og aðrir fjölskyldumeðlimir sem hafa tök á að leggja hönd á plóginn, standa því í strögnu núna við að nýta þurrkinn og heyja. 

Undirrituð getur sagt þær fréttir af sjálfri sér að hún hefur nýlokið námi sem hundaþjálfari frá Danmörku. Námið stendur fyrir utan hið hefðbundna menntakerfi, eins og gengur og gerist með þetta nám, en er viðurkennt af Danska Kennel-klúbbnum sem er svipuð stofnun og Hundaræktunarfélag Íslands hérlendis. Ég fór fyrst og fremst í gegnum þetta nám fyrir sjálfa mig, en aldrei að vita nema ég geri eitthvað meira með þetta í framtíðinni. Ég er a.m.k búin að læra ýmislegt gagnlegt og víkka sjóndeildarhringinn.


Höf. færslu: Lísa Gunnarsdóttir

» 17 hafa sagt sína skoðun

18.07.2011 21:01:07 / dadastadir

Frá Eyralandi

Í lok júní sóttum við Þorvarð á Eyralandi heim, skiluðum af okkur einni mórauðri tík og skoðuðum hundsefnin á bænum í leiðinni.  Ég fékk góðfúslegt leyfi til taka hundana upp og deila á netinu.


Við rákumst líka á þessa fallegu tarfa rétt fyrir utan Egilsstaði

Fyrsta upptakan er af Eyru og önnur upptakan af Gosa. Þau eru bæði undan Mac og Lýsu, fædd í febrúar 2010. Mér skildist á Þorvarði að hann ætlaði að halda þessum eintökum, enda afar efnilegir hundar.

Hundur 1: http://www.youtube.com/watch?v=ay-F_6ZpoMI
Hundur 2: http://www.youtube.com/watch?v=eBMoVpG9YHQ
Hundur 3: http://www.youtube.com/watch?v=geKA5tU3L30

Þriðja upptakan er af Danna frá Uppsölum í Skagafirði. Hann er fæddur í apríl 2010 og er undan Mac og Blesu frá Dýrfinnustöðum í Skagafirði. Blesa er undan Rex frá Daðastöðum og Frigg frá Daðastöðum.

Laglega gert hjá Þorvarði.


Höf. færslu: Lísa Gunnarsdóttir

» 15 hafa sagt sína skoðun

15.07.2011 13:35:23 / dadastadir

Eitt og annað...

Heldur lítið líf á síðunni undanfarið. Það er engu að síður alltaf e-ð verið að temja og smá saman að koma betur í ljós hvað í unghundunum býr. Meira um það seinna...

Af öðrum verkefnum er helst að nefna að þeir feðgar Gunnar og Reynir hafa hafist handa við að klæða vélaskemmuna sem hefur verið í byggingu síðustu ár. Mér líst svo ljómandi vel á þetta hjá þeim að ég er helst að hugsa um að flytja inn sjálf ;). Nokkrar myndir frá skemmubyggingunni má finna hér: http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/287544/



Að lokum set ég hér inn smá myndband sem Reynir bróðir tók upp, þegar við Panda brugðum á leik heima á Daðastöðum um daginn. Við fengjum nú sennilega ekki hátt fyrir þetta í hlýðnikeppni, enda einungis til gamans gert :Dhttp://www.youtube.com/watch?v=PvGExJC1aQ4

Með kveðju frá Daðastöðum

» 14 hafa sagt sína skoðun

08.06.2011 18:15:39 / dadastadir

Border Collie til sölu


Ég hef sett inn link hér til vinstri sem heitir "Border Collie til sölu". Þeir sem eru að leita sér að hundi geta skoðað þetta og sett sig í samband við Gunnar. Það hefur bæst heldur hratt í hundahópinn undanfarið. Auk ræktunarinnar á Daðastöðum hefur Gunnar innheimt nokkra tolla. Þar af eru margir spennandi hundar, en það er ekki hægt að halda öllu og orðnir heldur margir hundar á bænum. 

Hér er síðan slatti af nýjum myndum. Flestar af söleintökunum, en ekki allar: http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/287223/

Höf. færslu: Lísa Gunnarsdóttir

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2011 18:02:03 / dadastadir

Ungviðið


Hvolparnir undan Pressu og Cesar eru orðnir mánaðar gamlir. Þeir hafa þroskast fallega og bræða hjörtu. Sá með hvítu grímuna er hundur, restin tíkur. Á meðfylgjandi "link" eru nokkrar myndir af snúðunum: http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/287150/



Hvolparnir undan Pílu og Prins eru rétt rúmlega 3ja vikna og ekki síður hjartaknúsarar. Þessir tveir sem eru meira hvítir eru tíkur, en sá dekkri hundur. Hér má sjá nokkrar myndir af þeim: http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/287151/

Annars er sauðburður í fullum gangi. Það bera um 770 ær á bænum (gemsarnir eru ekki látnir bera) og þar af eru um 470 bornar. Ekki hefur verið hægt að setja út fram undir þetta sökum verðurs, og því orðið óþarflega þröngt á þingi. Við höfum þó ágætt húspláss, m.a. í hlöðunni, þannig þetta hefur bjargast ágætlega, en nú viljum við gjarnan fara að fá sól og sumaryl. Myndir frá sauðburði:  http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/287152/

Með kveðjum frá Daðastöðum

Höf. færslu: Lísa Gunnarsdóttir

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.05.2011 19:46:24 / dadastadir

Fannfergi í maí


Um þessar mundir stendur sauðburður sem hæst á Daðastöðum. Burður gengur vel, en veðrið setur strik í reikninginn. Við erum með ágætt húspláss, það sér fyrir endann á veðrinu í vikunni og því ekki ástæða til að barma sér. Fréttir frá gossvæðinu suðaustanlands setja hlutina í samhengi. 



Fleiri myndir teknar 22. maí 2011: http://dadastadir.blogcentral.is/myndasafn/287107/


Með kveðju frá Daðastöðum

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Heimsóknir
Í dag:  30  Alls: 47139
Gunnar Einarsson
HEIMILISFANG: Daðastaðir, 671 Kópasker, N-Þing NETFANG: dadastadir@simnet.is SÍMI: 465 2220 & 892 5228